Garðar Harðar
30.11.2008 11:49:08 / jazzlist

Nýr vefur, nýtt blogg ...

Ágætu lesendur, ég hef fært mig yfir á nýtt svæði: 

http://jazzlist.eastartist.com/
 :$Takk fyrir samskiptin á þessum vef :lol:


» 15 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 20:41:39 / jazzlist

Svalt er á Sítrustré....


... en það má vel hita sér með því að ferðast um  á gamla góða skíðasleðanum




og ef ekki hitnar nóg má bara smella
hér og hlusta


» 22 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 13:00:21 / jazzlist

Blúsbrot Garðars Harðar....

....var meðal margra sveita sem tók þátt í tónlistarhátíðinni BJARTSÝNISBLÚS sem stóð fram á rauða nótt í Egilsbúð Neskaupstað í gær. Hér fyrir neðan er mynd af Blúsbrotinu.

Frá vinstri talið:
Ágúst Ármann, Jón Hilmar, Pétur, Garðar, Einar Bragi, Þorleifur og Björgvin


» 19 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 15:01:50 / jazzlist

Jafnidalur




Ég fékk mér morgungöngu með haglabyssuna inn í Jafnadal í blíðskaparveðri ,en þangað hef ég ekki komið síðan 2005 þegar ég fór í samskonar gönguferð án þess að fá nokkuð. Nú brá hinsvegar betur við og því er hér  vísa sem varð til á enn einni Jafnadalsgöngunni fyrir nokkrum árum:

Ekki varð það fýluferð
fékk ég eina rjúpu
mætti hafa máls í verð
minsta kosti súpu


» 32 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 10:06:30 / jazzlist

Stöðfirskur gítarleikari


Það er gaman að geta bent á vefsíðu Svans Vilbergssonar, en hann er gamall nemandi minn í rafgítarleik (rokk, jazz og blues) en hefur lokið meistaranámi í klassískum gítarleik í Hollandi og er á ferð og flugi við tónleikahald víða um heiminn. Kíkið endilega í heimsókn á síðuna hans: 
http://www.svanurvilbergsson.com/


» 24 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 07:12:56 / jazzlist

Morgunganga


Við Anna tókum daginn snemma og fórum í góðan göngutúr um klukkan fimm í morgun. Það var yndislega gott veður, þokusúld og átta stiga hiti og svo þetta hreina loft sem alltaf fylgir rigningunni. Útsýnið var þó svolítið takmarkað. :)

» 26 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 17:18:52 / jazzlist

Brandari dagsins


» 19 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 13:03:38 / jazzlist

SAXA




» 25 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 13:01:11 / jazzlist

Peps Persson

http://www.muzic.se/bilder/konserter/img_id_stor_374.jpg
Uppáhalds blúsarinn minn . Skánskur snillingur sá besti á norðurlöndum og þótt víðar væri leitað.

Sjáið hann læf hér


» 32 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 11:59:17 / jazzlist

Íslenska útrásin & starfslokasamningarnir



Svona var nú gert vel við Flugleiðaforstjórana við starfslok árið 2006.

Anna hitti naglann beint á höfuðið þegar hún gerði þessa mynd. Skoðið þetta:

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4431234/1


» 21 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 21:40:28 / jazzlist

Gamla myndin


Hér er skemmtileg mynd af börnunum mínum fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan, sitjandi við arininn í Fögruhlíð, sumarbústað ömmu þeirra og afa.


» 28 hafa sagt sína skoðun

11.10.2008 23:48:45 / jazzlist

Róninn


Þennan fann ég í Osló í sumar. Hann var búinn að vera svo lengi í strætinu að hann hafði steinrunnið.
Einu sinni fyrir margt löngu gaf ég út plötu með hljómsveitinni BISMARCK ásamt félaga mínum og þar var lagið Róninn
og það má heyra hér


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  294  Alls: 78002
Dagsetning
28. janúar 2012
Tenglar
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Leitarbox

Ýmislegt
RSS tengill